Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 30. ágúst 2015 15:40
Arnar Geir Halldórsson
Þýskaland: Sigurganga Dortmund heldur áfram
Hummels skoraði í dag
Hummels skoraði í dag
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund 3-1 Hertha Berlin
1-0 Mats Hummels ('27)
2-0 Pierre Emerick Aubameyang ('51)
2-1 Salomon Kalou ('78)
3-1 Adrian Ramos ('90 )

Fyrri leik dagsins í Bundesligunni er lokið þar sem Dortmund fékk Hertha Berlin í heimsókn.

Mats Hummels kom heimamönnum yfir eftir tæpan hálftíma. Pierre Emerick Aubameyang tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari hálfleiks áður en Salomon Kalou minnkaði muninn á 78.mínútu.

Adrian Ramos gulltryggði sigur heimamamanna í uppbótartíma en hann lék áður fyrir Berlínarliðið.

Dortmund er því með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, líkt og Bayern Munchen. Hertha Berlin tapaði hinsvegar í fyrsta sinn á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner