Staðfest hefur verið að varnarmaðurinn Tyler Blackett hafi verið lánaður til Skotlandsmeistara Celtic frá Manchester United.
Blackett lék 12 leiki fyrir United á síðasta tímabili meðan Van Gaal var að reyna að finna réttu blönduna í varnarleiknum.
Þessi 21 árs varnarmaður var aftarlega í goggunarröðinni á Old Trafford.
Celtic er í efsta sæti skosku deildarinnar með 16 stig eftir fyrstu 6 leikina.
Athugasemdir