Umboðsskrifstofa Alex Oxlade-Chamberlain birti rétt í þessu áhugaverða færslu á Twitter.
Þar segir umboðsskrifstofan að samningur sé í höfn við Liverpool eins og sjá má neðst í fréttinni.
Væntanlega er átt við Oxlade-Chamberlain í því samhengi en leikmaðurinn sjálfur og félögin hafa ekkert staðfest ennþá.
Oxlade-Chamberlain hafnaði í gær tilboði frá Chelsea þar sem hann vill frekar fara til Liverpool. Oxlade-Chamberlain er sagður vilja spila á miðjunni eða á kantinum hjá Liverpool en hjá Chelsea óttast hann að vera í stöðu vængbakvarðar líkt og hjá Arsenal.
Samningur Oxlade-Chamberlain við Arsenal rennur út næsta sumar og félagið ákvað að selja hann núna frekar en að missa hann frítt eftir ár.

DEAL AGREED!!!! #LIVERPOOL #YNWA #COLOSSAL @LFC pic.twitter.com/LdQf4HYrGS
— Colossal Sports MGT (@colossalsportsm) August 30, 2017
Athugasemdir