Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. september 2014 10:53
Elvar Geir Magnússon
Beyonce, Jay-Z, Beckham og Zlatan í stúkunni í kvöld
Tónlistarstjörnurnar Beyonce Knowles og Jay-Z.
Tónlistarstjörnurnar Beyonce Knowles og Jay-Z.
Mynd: Getty Images
Stúkan á Parc de Princes leikvangnum í kvöld verður stjörnum prýdd þegar Paris St-Germain tekur á móti Barcelona í Meistaradeildinni.

Franska blaðið L’Equipe segir að David Beckham, Beyonce og Jay-Z verði öll meðal áhorfenda á leiknum.

Beckham lék tíu leiki fyrir PSG 2013 en það reyndust síðustu leikir á blómlegum ferli hans.

Zlatan Ibrahimovic veitir þessum stjörnum félagsskap í stúkunni en hann er meiddur og getur ekki leikið með PSG gegn sínu fyrrum félagi.
Athugasemdir
banner
banner
banner