Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 30. september 2014 21:16
Alexander Freyr Tamimi
John Terry: Ekki margir náð 100 leikjum
Terry spilaði sinn 100. leik í Meistaradeildinni í kvöld.
Terry spilaði sinn 100. leik í Meistaradeildinni í kvöld.
Mynd: Getty Images
John Terry, fyrirliði Chelsea, var ánægður með 1-0 sigur liðsins gegn Sporting Lisbon í Meistaradeildinni í kvöld.

Nemanja Matic skoraði eina mark gestanna frá Lundúnum, en Terry segir að sigurinn hefði getað verið talsvert stærri.

,,Við fengum svo mörg færi til að klára þetta, en þetta var eitt af kvöldunum þar sem boltinn vildi ekki inn. Sem betur fer skoraði Nemanja Matic," sagði Terry eftir leikinn.

,,Við töpuðum fyrsta leiknum í riðlinum í fyrra og enduðum á að vinna riðilinn. Við höfðum það í huga og vissum að við þyrftum sigur. Nú erum við á toppnum og við stjórnvölinn."

,,Ég er mjög stoltur af því að hafa spilað minn 100. Meistaradeildarleik í kvöld, það hafa ekki margir leikmenn afrekað það. Ég hef átt frábæran feril og megi það halda áfram sem lengst."

Athugasemdir
banner
banner
banner