„Þetta var mjög kaflaskiptur leikur, fyrri hálfleikurinn var mjög góður og seinni hálfleikurinn var mjög slakur," Kristinn Guðbrandsson, þjálfari ÍA, í Pepsi-deild kvenna eftir 3-2 tap gegn KR-ingum í dag.
Skagakonur voru 2-0 yfir þegar dómarinn flautaði til leikhlés, en í seinni hálfleiknum og voru gestirnir úr Vesturbænum miklu grimmari og svo fór að þeir tóku stigin þrjú með mikilli endurkomu.
Skagakonur voru 2-0 yfir þegar dómarinn flautaði til leikhlés, en í seinni hálfleiknum og voru gestirnir úr Vesturbænum miklu grimmari og svo fór að þeir tóku stigin þrjú með mikilli endurkomu.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 3 KR
„KR-ingarnir komu grimmari og höfðu bara meiri kraft og meiri þor og voru bara áræðnar," sagði Kristinn aðspurður að því hvað hefði gerst í seinni hálfleiknum.
ÍA var fyrir leikinn fallið úr Pepsi-deildinni, en Kristinn býst ekki við því að leikmannahópurinn verði sá sami á næstu leiktíð hjá Skagakonum.
„ Ég býst eiginlega ekki við því, ég held að það verði einhverjar breytingar. Það kemur bara allt í ljóst."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir