„Þetta var mjög skemmtilegur leikur fyrir þá sem komu að horfa á hann, frammistaðan var góð, þó ég hefði viljað sleppa því að fá á okkur þessi þrju mörk," sagði Óskar Rúnarsson, aðstoðarþjálfari ÍBV eftir 3-3 jafntefli við Þór/KA í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 3 Þór/KA
Leikurinn var stórskemmtilegur þar sem ÍBV skoraði 3 mörk á síðustu tíu mínútunum eftir að hafa lent 3-0 undir og náðu að jafna metin á dramatískan hátt.
„Það vantaði yfirvegun og við vorum ekki að finna rétta augnablikið til að spila okkur í gegn og búa til mjög gott færi,"
„Um leið og staðan er orðin 3-1 breytum við aðeins skipulaginu og hendum meira púðri í sóknarleikinn og það skilaði sér í tveimur mörkum til viðbótar," sagði Óskar.
Heilt yfir litið var Óskar sáttut með tímabilið.
„Við vinnum Lengjubikarinn og komumst í úrslit í bikar og okkur vantar herslumuninn í deildinni, ef byrjunin hefði verið jafn góð og endirinn hefðum við verið töluvert nær efstu liðinum,"
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir