„Við vorum bara ekki nógu tilbúnar í byrjun þegar við fengum markið á okkur og vorum lengi að kicka í gang. Það kostaði okkur tapið í dag því miður,“ sagði Svava Rós Guðmundsdóttir Bliki eftir að hafa þurft að sætta sig við eins marks tap gegn Val.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Breiðablik
„Við sköpuðum okkur fullt af færum og vorum klaufar að nýta ekki færin sem við fengum. Þær sóttu líka alveg á okkur en við náðum alveg að halda þeim fyrir utan þetta eina mark sem við fengum á okkur. Sem er pirrandi.“
Nú þegar Pepsi-deildinni er lokið þetta sumarið er ljóst að niðurstaðan er sú að Blikar enda í 2.sæti.
„Maður vill náttúrulega alltaf meira. Við klúðruðum þessu smá í leiknum á móti Stjörnunni og ætluðum að klára okkar og vona það besta. Það féll því miður ekki með okkur og við sættum okkur við annað sætið.“
Þó að deildinni sé lokið er tímabilið ekki búið hjá Breiðablik sem á eftir að mæta stórliði Rosengard í Evrópukeppninni. Svava Rós er spennt fyrir því verkefni og telur að Breiðablik eigi séns ef liðið nær toppleikjum.
„Það leggst mjög vel í mig. Við erum spenntar að fara í þetta verkefni. Við spilum á móti Rosengard eftir viku og ætlum bara að gera okkar besta og sýna hvað við erum góðar. Maður á alltaf séns ef maður spilar vel þannig að við eigum alveg möguleika.“
Athugasemdir