Stuðningsmaður Hamburg hljóp inn á völlinn í viðbótartíma í 3-1 tapi liðsins gegn Bayern í þýska bikarnum í gær.
Stuðningsmaðurinn var með trefil í hendinni sem hann notaði til að slá Franck Ribery leikmann Bayern.
Stuðningsmaðurinn sendi Ribery síðan kaldar kveðjur áður en öryggisverðir handsömuðu hann.
Stuðningsmaðurinn var með trefil í hendinni sem hann notaði til að slá Franck Ribery leikmann Bayern.
Stuðningsmaðurinn sendi Ribery síðan kaldar kveðjur áður en öryggisverðir handsömuðu hann.
,,Þetta ætti ekki að gerast en þetta er ekki svo slæmt," sagði Ribery eftir leikinn.
Hamburg bað Ribery afsökunar eftir leik en hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.
Athugasemdir