banner
   fim 30. október 2014 14:35
Elvar Geir Magnússon
Freyr Alexandersson með nýjan samning við KSÍ
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnusamband Íslands hefur gert nýjan tveggja ára samning við Frey Alexandersson um þjálfun A landsliðs kvenna. Frá þessu er greint á heimasíðu sambandsins.

Samningurinn gildir út árið 2016 en Freyr tók við kvennalandsliðinu í ágúst 2013.

Þá gerði KSÍ einnig nýja samninga við Ásmund Haraldsson, aðstoðarþjálfara, og Ólaf Pétursson, markvarðaþjálfara, um að vera Frey áfram innan handar.

Framundan hjá kvennalandsliðinu er undankeppni EM 2017 en riðlakeppnin hefst á næsta ári en dregið verður í riðla í apríl. Að þessu sinni munu 16 þjóðir komast í úrslitakeppnina, hafa verið 12 hingað til, en tilkynnt verður um það nú í desember hvar hún verður haldin.
Athugasemdir
banner
banner
banner