Manchester United hefur handsalað samkomulag við Monaco um kaup á framherjanum Radamel Falcao ef marka má frétt Goal.com í dag.
Manchester United borgaði sex milljónir punda til að fá Falcao á láni á þessu tímabili.
Manchester United borgaði sex milljónir punda til að fá Falcao á láni á þessu tímabili.
Félagið mun samkvæmt frétt Goal kaupa Falcao á 44 milljónir punda næsta sumar.
Hinn 28 ára gamli Falcao mun fá 240 þúsund pund í laun hjá United.
Falcao hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu en hann hefur skorað eitt mark í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Athugasemdir