Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. október 2014 15:30
Elvar Geir Magnússon
Lee Clark tekur við Blackpool (Staðfest)
Lee Clark.
Lee Clark.
Mynd: Getty Images
Lee Clark hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Blackpool, aðeins tíu dögum eftir að hafa verið rekinn frá Birmingham en bæði lið eru í veseni í Championship-deildinni.

Blackpool er í neðsta sæti með aðeins sex stig, sjö stigum frá öruggu sæti eftir 14 umferðir. Birmingham er sæti ofar með 11 stig.

Clark skrifaði undir rúllandi samning en hann tekur við starfinu af José Riga sem látinn var taka pokann sinn.

Clark segir að þetta sé mikil áskorun og markmiðið sé augljóst: Halda liðinu í deildinni og byggja út frá því. Á síðasta tímabili tókst honum að halda Birmingham uppi á dramatískan hátt.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner