Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 30. október 2014 18:51
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður Celtic í sjö leikja bann fyrir kynþáttaníð
Aleksandar Tonev með knöttinn.
Aleksandar Tonev með knöttinn.
Mynd: Getty Images
Aleksandar Tonev, vængmaður Celtic, hefur verið dæmdur í sjö leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð varnarmannsins Shay Logan hjá Aberdeen.

Tonev er 24 ára búlgarskur landsliðsmaður en atvikið átti sér stað í leik í skosku úrvalsdeildinni í september.

Celtic hyggst áfrýja niðurstöðunni og segja í yfirlýsingu að Tonev sé ekki rasisti. Leikmaðurinn kom til skoska meistaraliðsins á lánssamningi frá Aston Villa í ágúst og hefur spilað tíu leiki.

Tonev neitar sök og segir ekki hafa látið þau orð út úr sér sem hann er sakaður um.
Athugasemdir
banner
banner