Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 30. október 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Leikmenn Cornella ósáttir við fögnuð Marcelo
Marcelo er alltaf hress
Marcelo er alltaf hress
Mynd: Getty Images
Leikmenn UD Cornella á Spáni, voru allt annað en sáttir með Marcelo, leikmann Real Madrid, er liðin mættust í spænska konungsbikarnum í gær en brasilíski bakvörðurinn fagnaði ákaft er hann skoraði.

Marcelo skoraði fjórða og síðasta mark Madrídinga en hann gerði það eftir að markvörður Cornella hafði varið skot út í teiginn.

Hann fagnaði því með skemmtilegum fimleikaæfingum áður en hann hljóp til James Rodriguez sem var á bekknum eins og hann hafði unnið HM.

Leikmenn Cornella voru ekki sáttir með framkomuna en Marcelo varði sig þó með því að hann skori sjaldan og að þeir ættu að leyfa honum að njóta sín en hægt er að sjá markið og fögnuðinn hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner