Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 30. nóvember 2015 21:48
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Jafnt hjá Bolton og Brentford
Neil Danns gerði jöfnunarmark heimamanna.
Neil Danns gerði jöfnunarmark heimamanna.
Mynd: Getty Images
Bolton 1 - 1 Brentford
0-1 John Swift ('10)
1-1 Neil Danns ('65)

Botnlið Bolton gerði jafntefli við Brentford í lokaleik átjándu umferðar ensku Championship deildarinnar.

John Swift kom Brentford yfir snemma í fyrri hálfleik en heimamenn í Bolton voru betri í leiknum og herjuðu á mark gestanna stærsta part leiksins.

Heimamönnum tókst ekki að jafna fyrr en Neil Danns skoraði í síðari hálfleik. Meira var ekki skorað þrátt fyrir góð færi á báða bóga og niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Brentford er í ellefta sæti deildarinnar, þremur stigum frá Birmingham sem er í umspilssæti. Bolton er neðst með tólf stig eftir átján umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner