Jón Guðn Fjóluson mun á morgun skrifa undir samning hjá sænsku meisturunum í IFK Norrköping en Expressen greinir frá þessu í kvöld.
Jón Guðni er á förum frá GIF Sundsvall en samningur hans þar er að renna út. Hann verður kynntur sem nýr leikmaður Norrköping á fréttamannafundi í fyrramálið.
Jón Guðni er á förum frá GIF Sundsvall en samningur hans þar er að renna út. Hann verður kynntur sem nýr leikmaður Norrköping á fréttamannafundi í fyrramálið.
„Ég held að það sé kominn tími á þetta. Ég held að það sé gott fyrir mig sem leikmann að komast í eitthvað betra," sagði Jón Guðni við Fótbolta.net á dögunum þegar ljóst var að hann myndi yfirgefa herbúðir Sundsvall.
Hinn 26 ára gamli Jón Guðni lék með Fram áður en hann fór til Beerschot í Belgíu árið 2011.
Eftir eitt ár þar fór hann síðan til Sundsvall þar sem hann hefur verið í lykilhlutverki undanfarin ár.
Hjá Norrköping á hann að fylla skarð David Boo Wiklander sem fékk ekki nýjan samning eftir að liðið varð sænskur meistari.
Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason var í stóru hlutverki hjá Norrköping á síðasta tímabili en hann hefur verið orðaður við önnur félög að undanförnu.
Athugasemdir