Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 30. nóvember 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar: Vitum öll að Messi vinnur Gullknöttinn
Mynd: Getty Images
Lionel Messi var í kvöld valinn besti leikmaður síðasta árs á Spáni, þar sem hann vann bæði deild og bikar með Barcelona.

Fyrr í dag var Messi einn af þremur tilnefndum til Gullknattarins, en Neymar og Cristiano Ronaldo eru tilnefndir ásamt Argentínumanninum knáa.

Neymar segist vera viss um að Messi vinni Gullknöttinn, enda hafi hann verið bestur þeirra þriggja á síðasta tímabili.

„Ég er ánægður að vera einn af þremur leikmönnum sem eru tilnefndir til Gullknattarins," sagði Neymar.

„Við vitum öll að besti leikmaðurinn, Leo, vinnur þessi verðlaun."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner