Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. nóvember 2015 17:10
Magnús Már Einarsson
Panathinaikos refsað eftir að blysi var hent í Alfreð
Alfreð fær blysið í sig.
Alfreð fær blysið í sig.
Mynd: Twitter
Gríska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að draga þrjú stig af Panathinaikos eftir ólæti áhorfenda fyrir leik gegn Olympiakos á dögunum.

Stuðningsmenn Panathinaikos létu ófriðlega fyrir leikinn og blysi var meðal annars kastað í Alfreð Finnbogason framherja Olympiakos eins og sjá má hér að neðan. Leiknum var aflýst í kjölfarið.

Olympiakos hefur verið dæmdur 3-0 sigur í leiknum en að auki missir Panathinaikos þrjú stig.

Panathinaikos þarf einnig að leika næstu fjóra leiki fyrir luktum dyrum og borga 190 þúsund evrur í sekt.

Olympiakos er taplaust á toppi deildarinnar með 36 stig en Panathinaikos er í fimmta sæti með 19 stig.


Athugasemdir
banner
banner