Sverrir Ingi Ingason er í úrvalsliði vikunnar í Belgíu hjá dagblaðinu Nieuwsblad.
Sverrir átti góðan dag í 2-1 útisigri Lokeren á Sporting Charleroi á laugardag.
Sverrir átti góðan dag í 2-1 útisigri Lokeren á Sporting Charleroi á laugardag.
Lokeren fjarlægðist með sigrinum fallsvæðið en liðið er í tólfta sæti af sextán liðum í belgísku úrvalsdeildinni.
Sverrir kom til Lokeren frá Viking í byrjun árs.
Hann var valinn í íslenska landsliðshópinn á dögunum og spilaði allan leikinn í tapinu gegn Slóvakíu.
Athugasemdir