Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardag. Rætt var um veðmálastarfsemi og hagræðingu úrslita sem er vaxandi vandamál í heimsfótboltanum.
„Hagræðing úrslita tengist alltaf veðmálum en það er á hreinu að veðmál tengjast ekki alltaf hagræðingu úrslita. Flest veðmálastarfsemi er í lagi en hagræðing úrslita er mikið vandamál í fótboltanum og fleiri íþróttum. Ég er ekki svo einfaldur að halda því fram að Ísland sé eitthvað frábrugðið í þessum efnum," segir Þórir.
Mjög erfitt er að eiga við mál af þessu tagi og er Þórir sannfærður um að úrslitum hafi verið hagrætt hér á landi án þess að það hafi komist upp.
„Það er klárt að þetta hefur verið reynt á Íslandi og ég er viss um að þetta hafi þegar gerst á Íslandi þó maður geti ekki bent á það. Ég er sannfærður um að hér hefur úrslitum verið hagrætt. Það er fullt af leikjum sem fram fara hér á landi og fá litla sem enga athygli en þá má finna á veðmálasíðum úti í heimi, 2. flokksleiki og æfingaleiki."
Þórir segir að nokkrum sinnum hafi KSÍ fengið ábendingar um leiki þar sem grunsemdir voru um að eitthvað ólöglegt væri í gangi.
„Eitthvað af því var skoðað en við vorum aldrei með neitt fast í hendi um þetta. Hagræðingar úrslita er margþættur bransi og menn þekkja það í öllum íþróttagreinum; menn eru að múta dómurum eða leikmönnum og svo eru dæmi um að menn kaupi heilu fótboltafélögin," segir Þórir.
15-16 leikmenn sem bjuggu saman í einu húsi
Fyrir nokkrum árum var reynt að stofna félag hér á landi sem átti að taka þátt í Íslandsmótinu og hugmyndin var að hagræða úrslitum. Starfsmenn KSÍ fundu út að það væri maðkur í mysunni.
„Það kom erlendur aðili hingað til lands sem ætlaði að setja á fót lið hérna með lettneskum leikmönnum. Hann ætlaði fyrst að kaupa Grindavík en ekkert varð úr því og ákvað hann sjálfur að stofna félag og skráði það í Íslandsmót og bikarkeppni," segir Þórir.
„Það var eitthvað undarlegt við skráninguna á þessu liði og við fórum að kanna þetta betur. Þá voru komnir til Íslands 15-16 leikmenn sem bjuggu saman í einu húsi og voru byrjaðir að æfa. Ég hafði samband við kollega mína í viðkomandi landi og þeir könnuðust við kauða. Það var ástæða fyrir okkur að ætla að það væri eitthvað vafasamt í gangi og þeim var ekki leyft að stofna þetta félag formlega."
Viðtalið við Þóri má heyra í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Sjá einnig:
Upptaka - Hlustaðu á útvarpsþáttinn í heild sinni
Athugasemdir