Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 30. nóvember 2016 06:00
Magnús Már Einarsson
Andri Steinn tekur við Hvíta Riddaranum (Staðfest)
Aron Elfar og Kristinn Aron ganga til liðs við Hvíta
Agnar Freyr Gunnarsson formaður, Aron Elfar Jónsson, Andri Steinn Birgisson og Kristinn Aron Hjartarson.
Agnar Freyr Gunnarsson formaður, Aron Elfar Jónsson, Andri Steinn Birgisson og Kristinn Aron Hjartarson.
Mynd: Hvíti Riddarinn
Andri Steinn Birgisson hefur verið ráðinn þjálfari Hvíta Riddarans í 4. deildinni.

Andri Steinn kom Þrótti Vogum upp úr 4. deildinni í fyrra en hann lét af störfum hjá liðinu um mitt sumar í ár. Hinn 32 ára gamli Andri á langan feril að baki sem leikmaður en hann lék meðal annars með Keflavík, Grindavík og Fjölni í efstu deild.

Aron Elfar Jónsson og Kristinn Aron Hjartarson hafa einnig gengið til liðs við Hvíta Riddarann frá Þrótti Vogum.

Aron þekkir til hjá Hvíta Riddaranum því hann lék með liðinu frá 2013 til 2015. Á dögunum kom framherjinn Alexander Aron Davorsson einnig til Riddarans frá Aftureldingu.

Hvíti Riddarinn endaði í 3. sæti í 4. deildinni í sumar en liðið tapaði 3-2 gegn Berserkjum í leikjum um sæti í 3. deild.
Slapp
banner