Spænski tölfræðingurinn Alexis hefur teiknað upp líkurnar fyrir dráttinn í riðla á HM á morgun. Tvö lönd úr sömu heimsálfu geta ekki lent saman í riðli fyrir utan það að tvær Evrópuþjóðir verða saman í sex af átta riðlum.
Út frá þessu hefur Alexis reiknað líkurnar. Samkvæmt tölfræði hans er líklegast að Ísland lendi með Mexíkó í riðli eða 19,8% líkur.
Þar á eftir koma Nígería og Marokkó úr fjórða styrkleikaflokki. 18,1% líkur eru að Ísland mæti Nígeríu og 18% líkur á að liðið mæti Marokkó.

Ólíklegast er að Ísland mæti Serbíu eða 3,3% líkur. Ástæðan er sú að fjórði styrkleikaflokkur er síðasti í drættinum og Serbar eru eina Evrópuþjóðin í potti fjögur.
Góðar líkur eru á að önnur Evrópuþjóð verði komin í riðil Íslands þegar kemur að því að draga lið úr fjórða flokki. Næst ólíklegast er að Ísland mæti Rússlandi eða 6,3% líkur. Gestgjafar Rússa eru í efsta styrkleikaflokki.
Hér að neðan má sjá útreikninga Alexis. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri!
TODAS LAS PROBABILIDADES DE TODOS LOS EMPAREJAMIENTOS DEL SORTEO DE LA COPA DEL MUNDO.#WorldCupDraw
— MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) November 29, 2017
Si llegamos a 30.000 RTs publico un vídeo en el que os explico con detalle como se pueden hacer estos cálculos y hasta os puedo mostrar el código de programación del simulador. pic.twitter.com/j16l6UFXTS
Athugasemdir