Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 30. desember 2017 15:56
Magnús Már Einarsson
Albert Guðmunds, Orri og Ólafur Ingi bætast við Indónesíu hópinn
Ragnar og Sverrir fara ekki með
Albert Guðmundsson, fyrirliði U21 landsliðsins, kemur inn í hópinn.
Albert Guðmundsson, fyrirliði U21 landsliðsins, kemur inn í hópinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Sigurður Ómarsson varnarmaður úr Val.
Orri Sigurður Ómarsson varnarmaður úr Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikmenn hafa bæst við íslenska landsliðshópinn sem mætir Indónesíu í vináttuleikjum dagana 11. og 14. janúar næstkomandi.

Albert Guðmundsson (PSV Eindhoven), Orri Sigurður Ómarsson (Valur) og Ólafur Ingi Skúlason (Karabukspor) bætast við hópinn.

Varnarmennirnir Ragnar Sigurðsson og Sverrir Ingi Ingason verða hins vegar ekki með landsliðinu í þessu verkefni. Ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða en Ragnar og Sverrir fengu ekki leyfi frá sínum félagsliðum til að fara með til Indónesíu.

Markverðir:
Rúnar Alex Rúnarsson (Nordsjælland)
Anton Ari Einarsson (Valur)
Fredrik Schram (Roskilde)

Varnarmenn:
Jón Guðni Fjóluson (Norrköping)
Hjörtur Hermannsson (Bröndby)
Hólmar Örn Eyjólfsson (Levski Sofia)
Haukur Heiðar Hauksson (AIK)
Viðar Ari Jónsson (Brann)
Böðvar Böðvarsson (FH)
Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
Orri Sigurður Ómarsson (Valur)

Miðjumenn:
Ólafur Ingi Skúlason (Karabukspor)
Arnór Ingvi Traustason (Malmö)
Aron Sigurðarson (Tromsö)
Arnór Smárason (Hammarby)
Mikael Anderson (Venssyssel)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
Samúel Kári Friðjónsson (Valerenga)

Sóknarmenn:
Óttar Magnús Karlsson (Molde)
Björn Bergmann Sigurðarson (Molde)
Kristján Flóki Finnbogason (Start)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Hammarby)
Albert Guðmundsson (PSV Eindhoven)
Athugasemdir
banner
banner
banner