Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. desember 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Allir vilja fá Pjaca á láni
Mynd: Getty Images
Samkvæmt fregnum frá Ítalíu er Juventus tilbúið til að senda Marko Pjaca frá sér á lánssamning í janúar.

Pjaca er 22 ára gamall og nýlega búinn að ná sér af krossbandsslitum. Hann á 14 deildarleiki að baki fyrir Juve og 13 landsleiki fyrir Króatíu.

Mónakó, Atalanta, Schalke, Sassuolo og Zenit eru meðal félaga sem vilja ólm fá Pjaca lánaðan í janúar.

Juve hefur engan áhuga á að selja kantmanninn, sem væri búinn að spila talsvert í haust ef ekki fyrir meiðslin.

Pjaca kom til Juventus í fyrra eftir frábæran árangur með Dinamo Zagreb.
Athugasemdir
banner
banner