Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. desember 2017 12:30
Kristófer Jónsson
Chelsea undirbýr tilboð í Ross Barkley
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Chelsea undirbúa núna tilboð í Ross Barkley, miðjumann Everton. Þetta segir fjölmiðillinn Daily Telegraph.

Ross Barkley var nálægt því að ganga í raðir Chelsea á lokadegi félagsskiptaglugganum í sumar en hætti við á síðustu stundu þar sem að hann vildi ekki taka svona stóra ákvörðun á meðan hann var ekki heill.


Barkely hefur ekki ennþá spilað leik á þessari leiktíð vegna fyrrnefdra meiðsla en ætla má að erfitt verði fyrir hann að brjóta sér leið inní byrjunarliðið á ný.

Þrátt fyrir þessi þrálátu meiðsli er Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, harðákveðinn í að krækja í Barkley og þá helst í janúarglugganum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner