Sagan endalausa af félagsskiptum Philippe Coutinho til Barcelona er hvergi nær á enda. Spánarliðinu mistókst að krækja í Brasilíumanninn í sumar en ætlar að reyna aftur janúarglugganum.
Nýjustu fréttir herma að Coutinho sé nú þegar byrjaður að undirbúa sig fyrir brottför og leiti sér nú að húsi í Barcelona. Hann vill þá helst búa nálægt Paulinho, samherja sínum í brasilíska landsliðinu, eða Luis Suarez, fyrrum samherja sínum hjá Liverpool.

Coutinho hefur verið funheitur með Liverpool á þessu tímabili en hann hefur skorað sjö mörk í deildinni og lagt upp önnur sex. Það yrði því mikill missir fyrir Liverpool ef að ákveði hann að fara.
Fyrr í vikunni tilkynnti félagið kaup á varnarmanninum Virgil Van Dijk frá Southapton á 75 milljónir punda. Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur hins vegar sagt að liðið þurfi ekki að selja leikmenn til að fjármagna kaupin.
Athugasemdir