Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 30. desember 2017 18:43
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Einkunnir Bournemouth og Everton: Fraser bestur - Gylfi fær fimmu
Ryan Fraser reyndist hetja Bournemouth í dag.
Ryan Fraser reyndist hetja Bournemouth í dag.
Mynd: Getty Images
Bournmouth og Everton mættust fyrr í dag þar sem heimamenn höfðu betur 2-1.

Ryan Fraser sá til þess að heimamenn voru með forystuna í hálfleik, 1-0.

Í síðari hálfleik jafnaði Idrissa Gana Gueye fyrir Everton, Ryan Fraser reyndist síðan hetja Bournemouth þegar hann kom þeim yfir undir lok venjulegs leiktíma.

Ryan Fraser sem skoraði tvö mörk í dag fékk hæstu einkunn þeirra leikmanna sem léku leikinn á Vitality vellinum.

Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton í dag en hann fær fimm í einkunn fyrir frammistöðu sína.

Einkunnir Bournemouth: Begovic (6), Francis (6), S. Cook (6), Ake (7), Smith (7), L. Cook (6), Gosling (6), Fraser (8), Ibe (7), King (6), Wilson (7).

Varamenn: Afobe (7), Mousset (6), Arter (6).

Einkunnir Everton: Pickford (7), Kenny (6), Martina (6), Keane (6), Jagielka (6), Gueye (7), McCarthy (5), Schneiderlin (5), Lennon (5), Gylfi Sigurðsson (5), Calvert-Lewin (5).

Varamenn: Rooney (6), Niasse (7), Bolasie (6).

Maður leiksins: Ryan Fraser.
Athugasemdir
banner
banner
banner