Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. desember 2017 15:30
Kristófer Jónsson
Elneny gerir grín að Sanchez
Mynd: Getty Images
Mohamed Elneny, miðjumaður Arsenal, birti í dag skondna Twitter færslu þar sem að hann skýtur létt á liðsfélaga sinn Alexis Sanchez.

„Hver kemur með mér til Rússlands? Því miður er ekkert pláss fyrir þig Sanchez" segir í Twitter færslu Elneny en er hann þá að vitna í það að Chile mistókst að vinna sér sæti inná HM í Rússlandi næsta sumar.

Hinn egypski Elneny hefur verið í aukahlutverki hjá Arsenal á tímabilinu á meðan að Sanchez hefur verið lykilmaður. Þeir verða væntanlega báðir í leikmannahópi liðsins þegar að þeir heimsækja West Brom á morgun.

Tweetið má sjá hér að neðan




Athugasemdir
banner
banner
banner