Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. desember 2017 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Milner um Salah: Mig skortir orð til að lýsa honum
Salah skoraði tvö í dag.
Salah skoraði tvö í dag.
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool í dag í 2-1 sigri á Leicester City.

James Milner segist eiga erfitt með að finna orð til að lýsa Salah.

„Hann heldur bara áfram að skora, mig er farið að skorta orð til að lýsa honum."

„Það er mjög mikilvægt að við höldum áfram að hvetja hann áfram en við megum samt ekki setja of mikla pressu á hann," sagði Milner sem talaði næst um hversu vel gestirnir hefðu varist.

„Það er ekki auðvelt fyrir neitt lið að koma á Anfield en þeir komu og vörðust vel og settu pressu á okkur með því að skora snemma," sagði James Milner.



Athugasemdir
banner
banner