Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 30. desember 2017 21:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pogba: Þurfum að fara vinna aftur
Mynd: Getty Images
Paul Pogba lék allan leikinn fyrir Manchester United í kvöld þegar liðið mætti Southampton, þar sem niðurstaðan var markalaust jafntefli.

„Við vildum vinna í dag, en við fengum ekki meira út úr leiknum en jafntefli. Við þurfum að fara vinna aftur og þá fer þetta að líta betur út aftur."

„Við fundum ekki leið til að vinna í dag, við áttum að fá vítaspyrnu sem við fengum ekki en ef við hefðum fengið hana og skorað þá hefði það breytt leiknum," sagði Pogba.

Pogba segir að liðið sé farið að finna fyrir pressu.

„Við finnum orðið fyrir pressu, en við verðum að gleyma henni og einbeita okkur að okkur sjálfum."

Manchester United fer næst í heimsókn til Liverpool borgar þar sem þeir mæta Everton þann 1. janúar, leikurinn hefst klukkan 17:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner