Hið stjörnum prýdda lið PSG marði Rennes í frönsku deildinni í gær.
Parísarliðið hefur ekki verið sannfærandi það sem af er leiktíðar en nálgast nú Lyon sem er í toppsætinu. Eitt stig skilur liðin að en Lyon á leik til góða.
Ezequiel Lavezzi gerði eina mark leiksins og kom það eftir frábært samspil þar sem Zlatan Ibrahimiovic, Javier Pastore, Adrien Rabiot og Lavezzi tættu í sig vörn Rennes.
Sjáðu myndband af markinu hér fyrir neðan.
Athugasemdir