Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 31. janúar 2015 18:40
Arnar Geir Halldórsson
Robert Huth á leið til Leicester
Huth hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik fyrir Stoke
Huth hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik fyrir Stoke
Mynd: Getty Images
Leicester City gæti verið að fá liðsstyrk en Mark Hughes, stjóri Stoke City, staðfesti að Huth væri í læknisskoðun hjá botnliðinu.

Leicester þarf klárlega á styrkingu að halda en varnarleikur liðsins hefur oft á tíðum verið ansi skrautlegur.

Þjóðverjinn stóri og stæðilegi hefur verið í algjöru aukahlutverki hjá Stoke í vetur og aðeins spilað einn deildarleik.

Huth hefur verið hjá Stoke frá árinu 2009 en hann á 19 landsleiki fyrir Þýskaland.
Athugasemdir
banner
banner
banner