Emil fyrirliði
Byrjunarliðið er klárt fyrir vináttuleik Íslands og Eistlands klukkan 16:00 en leikurinn verður í beinni á Skjá Sport.
Lars Lagerback og Heimir Hallgrímsson gera miklar breytingar en enginn leikmaður sem byrjaði gegn Kasakstan á laugardag er í byrjunarliðinu í dag.
Jón Daði Böðvarsson mun spila á vinstri kantinum en ekki í fremstu víglínu. Alfreð Finnbogason og Viðar Örn Kjartansson byrja frammi.
Emil Hallfreðsson er fyrirliði í fyrsta skipti í dag.

Byrjunarlið Íslands
Ögmundur Kristinsson (Randers)
Haukur Heiðar Hauksson (AIK)
Hallgrímur Jónasson (OB)
Jón Guðni Fjóluson (GIF Sundsvall)
Hörður Björgvin Magnússon (Cesena)
Rúrik Gíslason (FC Kaupmannahöfn)
Emil Hallfreðsson (Hellas Verona) - fyrirliði
Guðlaugur Victor Pálsson (Helsingborg)
Jón Daði Böðvarsson (Viking)
Alfreð Finnbogason (Real Sociedad)
Viðar Örn Kjartansson (Jiangsu Sainty)
Athugasemdir