Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. mars 2015 15:06
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Steinn til Notodden (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Steinn Hafsteinsson hefur gengið til liðs við Notodden FK í norsku C-deildinni.

Notodden hefur keypt Guðmund í sínar raðir frá Fram en hann skrifaði undir í vikunni.

Hinn 25 ára gamli Guðmundur Steinn skoraði fimm mörk í tólf leikjum þegar Fram féll úr Pepsi-deildinni í fyrra.

Í vetur hefur hann lítið æft vegna meiðsla en þjálfari Notodden stefnir á að koma Guðmundi í eins gott leikform og hægt er áður en 2. deildin hefst þann 19. apríl.

Guðmundur Steinn er uppalinn hjá Val en hann lék með Víkingi Ólafsvík frá 2011 til 2013.

Guðmundur Steinn hjálpaði Ólafsvíkingum að komast upp í Pepsi-deildina í fyrsta skipti árið 2012 en sama ár var hann valinn leikmaður ársins í 1. deildinni.
Athugasemdir
banner
banner