Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   þri 31. mars 2015 20:06
Elvar Geir Magnússon
skrifar frá Eistlandi
Hallgrímur: Skulum ekki mála þetta svartara en það er
Icelandair
Hallgrímur var miðvörður hjá Íslandi í dag.
Hallgrímur var miðvörður hjá Íslandi í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við hefðum viljað spila betri leik," sagði Hallgrímur Jónasson miðvörður Íslands eftir 1-1 jafntefli gegn Eistlandi í vináttulandsleik í Tallin í dag.

,,Mér fannst við byrja vel fyrstu 20, spiluðum vel frá þeirra pressu og skoruðum fínt mark. Síðan eru þeir betri seinni hluta fyrri hálfleiks. Í hálfleik töluðum við um hvernig við ætluðum að komast aftur inn í leikinn en mér fannst það ekki ganga nógu vel."

,,Mér fannst þeir hættulegri en við, þó við höfum fengið nokkur góð færi fannst mér ekki nógu góður balance í liðinu. Þetta er æfingaleikur og margir fengu tækfæri, 1-1 á útivelli. Við skulum ekki mála þetta svartara en það er."

Ísland fékk klaufalegt mark á sig sem Eistar jöfnuðu metin úr í síðari hálfleik.

,,Já við missum boltann á leiðinlegum stað og fengum á okkur 2 á 2 og það kemur utanáhlaup sem við töluðum vel um hvernig við ætluðum að leysa ég og Raggi en svo skaut hann fyrir utan teig og því miður fór boltinn inn."
Athugasemdir
banner
banner