Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 31. mars 2015 14:24
Magnús Már Einarsson
Joey Barton auglýsir gistingu fyrir Heiðar Helguson
Heiðar fagnar marki með QPR.
Heiðar fagnar marki með QPR.
Mynd: Getty Images
Heiðar Helguson, fyrrum framherji QPR og íslenska landsliðsins, er byrjaður að leigja út íbúðir í Reykjavík fyrir ferðamenn.

Joey Barton, fyrrum liðsfélagi Heiðars hjá QPR, auglýsir íbúðirnar á Twitter í dag og segir það vera góðan kost ef menn eru á leið í frí til Íslands.

Heiðar spilaði með QPR frá 2009 til 2012 og er í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins.

Ekki er ólíklegt að einhverjir stuðningsmenn QPR séu spenntir fyrir því að kaupa gistingu af kappanum á Íslandi.

Hér að neðan má sjá auglýsinguna hjá Barton á Twitter í dag.



Athugasemdir
banner
banner