Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 31. mars 2015 19:44
Elvar Geir Magnússon
skrifar frá Eistlandi
Ögmundur: Hálf grátlegt að leyfa þeim að stjórna
Icelandair
Ögmundur varði mark Íslands í Tallin í dag og er svekktur með 1-1 jafntefli.
Ögmundur varði mark Íslands í Tallin í dag og er svekktur með 1-1 jafntefli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var ekki nógu gott, við byrjuðum vel fyrstu 20 en eftir það var þetta bara lélegt held ég," sagði Ögmundur Kristinsson markvörður íslenska landsliðsins eftir 1-1 jafntefli við Eistland í vináttulandsleik í Tallin í dag.

,,Við byrjuðum af krafti eins og við ætluðum okkur en svo féllum við bara niður og leyfðum þeim að stjórna leiknum sem er hálf grátlegt."

,,Það vantaði mikið flæði í spilamennskuna og völlurinn hjálpaði manni ekkert við það. En það er engin afsökun. Því fór sem fór."


Ögmundur var spurður út í jöfnunarmark Eistlands í leiknum og hvort hann hafi viljað sjá mennina fyrir framan sig gera betur?

,,Jájá, auðvitað hefði Raggi getað lokað betur á hann og það er gott að vera vitur eftirá. En það er ekkert að segja við því í dag."

,,Ég held að hver og einn einasti í dag sjái það hjá sér sjálfum að þeir geta gert mikið betur. Það sást inni í klefa eftir leikinn að menn voru svekktir með þetta."

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner