„Þetta var slakur leikur fannst mér," sagði Ólafur Ingi Skúlason sem lék seinni hálfleikinn í 1-1 jafnteflinu gegn Eistlandi í kvöld.
„Við byrjuðum vel en duttum algjörlega úr takti við leikinn. Þeir voru graðari en við og börðust meira. Þetta var ekki fallegasti leikur sem hægt er að sjá."
„Við vorum í raun heppnir að ná jafntefli. Við náðum aldrei að halda boltanum nægilega vel. Við gerðum okkur erfitt fyrir."
„Þessir leikmenn sem spiluðu í dag eru betri en við sýndum í dag. Við verðum að reyna að gera betur næst," sagði Ólafur Ingi.
Viðtalið má sjá í heild hér að ofan.
Athugasemdir