Stjarnan og Leiknir verða ekki með í 8-liða úrslitum Lengjubikars karla þar sem þau verða erlendis í æfingaferð.
Leiknir hefur þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum og líklegt er að Stjarnan fari einnig áfram en liðið á tvo leiki eftir í riðlinum.
Stjarnan og Leiknir eru á leið til Spánar í æfingaferð og geta þar af leiðandi ekki tekið þátt í 8-liða úrslitunum sem eru áætluð 16. apríl. Keflvíkingar eru í sömu sporum en þeir eiga ekki möguleika á að fara áfram.

Þetta þýðir að önnur lið eiga möguleika á að taka sæti Stjörnunna og Leiknis í 8-liða úrslitunum.
,,Við erum að hugsa um það hvernig við munum bregðast við því," sagði Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ við Fótbolta.net í dag.
,,Það fer svolítið eftir því hvaða lið fara áfram. Það er ljóst að í tveimur riðlum mun þetta hafa áhrif."
Þrír riðlar eru í A-deild Lengjubikars en tvö efstu liðin í öllum riðlum fara áfram sem og tvö lið með bestan árangur í 3. sæti.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |

Athugasemdir