Í dag fara fram þrír vináttulandsleikir, en lið eru nú í undirbúningi fyrir EM í Frakklandi sem hefst þann 10. júní.
Fyrsti leikur dagsins er þó ekki í undirbúning fyrir EM, en þa er leikur Serbíu og Ísrael. Hvorugt liðið er að fara á EM og því einungis um vináttulandsleik að ræða.
Næsti leikur dagsins, sem hefst stuttu á eftir leik Serbíu og Ísrael, er aðeins áhugaverðari fyrir íslenska fótboltaáhugamenn. Austurríki fær þá Möltu í heimsókn, en Austurríkismenn eru með Íslendingum í riðli á EM og því verður áhugavert að sjá hvernig Austurríki spilar í dag.
Lokaleikur dagsins er svo leikur Íra og Hvítu-Rússa, en Írar eru á leið á EM og því leikur í undirbúningi fyrir mótið hjá þeim.
Leikir dagsins:>/b>
18:15 Serbía - Ísrael
18:30 Austurríki - Malta
18:45 Írland - Hvíta-Rússland
Athugasemdir