Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 31. júlí 2014 19:00
Magnús Már Einarsson
Bjarki Páll í KFG (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Bjarki Páll Eysteinsson hefur gengið til liðs við KFG í 4. deildinni.

KFG er að salta C-riðilinn í 4.deildinni en liðið hefur unnið alla tíu leiki sína og er á leið í úrslitakeppnina.

Bjarki Páll er kantmaður en hann hefur leikið með Stjörnunni allan sinn feril.

Samtals hefur þessi 27 ára gamli leikmaður spilað 57 leiki í efstu deild með Stjörnunni en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan síðastliðið haust.
Athugasemdir
banner
banner