Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 31. júlí 2014 12:29
Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik lánar Hlín í HK/Víking (Staðfest)
Hlín í leik með Breið
Hlín í leik með Breið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur lánað miðjumanninn reynda Hlín Gunnlaugsdóttur til HK/Víkings út tímabilið.

Hún er þegar komin með leikheimild og má spila með HK/Víkingi gegn Grindavík í 1. deild kvenna í kvöld.

Hlín Gunnlaugsdóttir er 25 ára gömul og hefur allan sinn feril spilað með Breiðabliki.

Hún á að baki 152 leiki í deild og bikar með Breiðabliki frá því meistaraflokksferillinn hófst árið 2003 og hefur skorað í þeim 15 mörk.

Hún var búin að spila 12 leiki með Breiðabliki í sumar og skora í þeim tvö mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner