Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 31. júlí 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Gerrard: Sagði Suarez að hann væri of góður fyrir Arsenal
Steven Gerrard og Luis Suarez.
Steven Gerrard og Luis Suarez.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, sagði Luis Suarez að taka eitt tímabil til viðbótar með liðinu þegar Arsenal hafði áhuga á honum síðastliðið sumar.

Arsenal vildi fá Suarez síðastliðið sumar en Liverpool vildi ekki selja. Úrúgvæinn átti frábært tilboð með Liverpool og var í kjölfarið seldur til Barcelona á dögunum.

,,Draumur hans frá fyrsta degi hefur verið að spila með Real Madrid eða Barcelona. Síðasta sumar þegar hann var úti í kuldanum og að æfa einn þá sagði ég við hann 'ekki fara til Arsenal.' Með fullri virðingu þá sagði ég að hann væri of góður fyrir Arsenal," sagði Gerrard.

,,Ég sagði 'ef þú skorar 30 mörk fyrir okkur og verður leikmaður tímabilsins þá munu þau (Barcelona og Real Madrid) reyna að fá þig."

,,Ég þekki þessi félög sjálfur og veit að ef þú spilar vel þá reyna þau aftur að fá þig. Ég vissi að þau myndu reyna að krækja aftur í hann líka. Ég taldi bara af virðingu fyrir stuðningsmenn Liverpool þá þyrfti hann að taka eitt tímabil í viðbót."

,,Margir telja að hann hefði átt að gefa okkur meira en það er eins með alla erlenda leikmenn. Draumur minn var að spila fyrir Liverpool en erlendu leikmönnunum dreymir um að spila með Real Madrid eða Barcelona. Það er staðreynd."

,,Ég hefði orðið mjög svekktur ef Luis hefði farið til Arsenal. Ég er svekktur að sjá hann fara núna en ég er ánægður fyrir hans hönd að fá það sem hann vill og verðskuldar."

,,Eiginkona hans er frá Barcelona og þú getur ekki ásakað leikmann sem hefur lagt svona hart að sér fyrir draum sinn. Þú getur ekki verið reiður þegar hann fer til Barcelona en ég hefði verið svekktur ef hann hefði farið til Arsenal."

Athugasemdir
banner
banner