Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 31. júlí 2014 18:30
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Óli í KV (Staðfest)
Guðmundur Óli Steingrímsson.
Guðmundur Óli Steingrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KV hefur fengið miðjumanninn Guðmund Óla Steingrímsson í sínar raðir frá KFG.

Guðmundur Óli er uppalinn hjá Völsungi en hann lék með KA í 1. deildinni frá 2008 til 2012.

Í fyrra spilaði Guðmundur Óli með Völsungi í 1. deildinni áður en hann gekk til liðs við KFG í vor þar sem hann hefur spilað í 4. deildinni í sumar.

KV hefur einnig fengið markvörðinn Kristófer Erni G. Haraldsson í sínar raðir frá Hamri í Hveragerði.

Björn Þorláksson er hins vegar farinn aftur til KR eftir að hafa verið í láni hjá KV í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner