Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 31. júlí 2014 13:41
Hafliði Breiðfjörð
Inga Birna snýr aftur í Stjörnuna (Staðfest)
Inga Birna er komin með leikheimild með Stjörnunni.
Inga Birna er komin með leikheimild með Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Inga Birna Friðjónsdóttir er komin með leikheimild með Stjörnunni að nýju og verður til taks fyrir félagið út tímabilið.

Inga Birna er í námi í Danmörku og verður þar til áramóta.

Hún mun ekki flytjast heim en verður til taks ef félagið þarf að leita til hennar síðasta hlutann af tímabilinu og þegar Meistaradeildin hefst í vetur.

Inga Birna spilaði með Stjörnunni frá 2006 og út árið 2012 og var lykilmaður í liðinu þegar hún hélt til náms í Danmörku.

Eins og kom fram á Fótbolta.net fyrr í dag hefur Stjarnan fengið Björk Gunnarsdóttur aftur til liðs við sig í dag en þær Rúna Sif Stefánsdóttir og Meagan Kelly verða frá út tímabilið vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner