Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö mörk í 5-2 sigri KR-inga á ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Hann var ánægður með úrslitin og að liðið hafi skorað fimm mörk. Hann er samt óánægður með þessi mörk sem liðið fékk á sig.
Hann var ánægður með úrslitin og að liðið hafi skorað fimm mörk. Hann er samt óánægður með þessi mörk sem liðið fékk á sig.
,,Þetta er frábært. Það er alltaf erfitt að koma hingað til Vestmannaeyja og að sama tíma mjög skemmtilegt. Ég er ánægður með að við séum að fara í Laugardalinn í ágúst."
Það voru mikil læti í stúkunni og mikið baulað á Kjartan Henry í leiknum. Þegar hann var tekinn útaf var baulað á hann enn meira. Hann tekur þessi ekkert inn á sig.
,,Svona á fótbolti að vera. Ég tek þetta ekkert nærri mér. Ég reyni að svara fyrir mig inn á vellinum og mér fannst ég gera það ágætlega í dag. Ég er mjög ánægður. Ég er hinsvegar ekki á leið á Þjóðhátíð, það er alveg á hreinu. Ég þori því varla. Ég tek því rólega með fjölskyldunni ég er nefnilega ekki þessi hálfviti sem allir halda," sagði Kjartan Henry.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir