Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 31. júlí 2014 21:30
Daníel Freyr Jónsson
Tottenham að landa Eric Dier
Eric Dier.
Eric Dier.
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur náð samkomulagi við Sporting Lisbon um kaupverð á varnarmanninum Eric Dier.

Enska félagið staðfesti þetta með stuttri tilkynningu í kvöld, en Dier er einungis tvítugur og þykir mikið efni.

Dier er fæddur á Englandi en fluttist til Portúgal með fjölskyldu sinni ungur að aldri. kom upp í gegnum hið margfræga unglingastarg Sporting. Á hann að baki leiki með unglingalandsliðum Englands.

Leikmaðurinn mun núna gangast undir læknisskoðun áður en hann gengur formlega í raðir Tottenham.

Kaupverðið er talið nema um 4 milljónum punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner