Anna Garðarsdóttir er gengin í raðir Þróttar frá Val á lokadegi félagaskiptagluggans.
Anna sem er 27 ára gömul getur spilað sem miðjumaður eða framherji.
Hún spilaði sex leiki með Val í Pepsi-deildinni og Borgunarbikarnum í sumar.
Hún hefur spilað með HK/Víkingi, Val, Aftureldingu, KR og Selfossi hingað til á ferlinum.
Samtals hefur hún spilað 108 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 37 mörk.
Þrótti hefur gengið illa að skora í sumar og aðeins skorað 4 mörk í fyrstu 12 leikjum mótsins. Liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig.
Haraldur Sigfús Magnússon tók við þjálfun liðsins í vikunni af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir