Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, hefur fengið leikheimild með Augnabliki sem leikur í 4. deildinni.
Augnablik er í toppsæti B-riðils og í harðri baráttu við KH og Skallagrím um sæti í úrslitakeppninni. Hjörtur Júlíus Hjartarson er spilandi þjálfari Augnabliks.
Arnar spilaði síðast með Breiðabliki 2009 þegar liðið hampaði bikarmeistaratitlinum.
Hann lék sem miðjumaður og var lengi í atvinnumennsku auk þess að leika 71 landsleik.
Í dag er lokadagur félagaskiptagluggans en Þorvaldur Ingimundarson og félagar á KSÍ munu skella í lás á miðnætti.
Athugasemdir