Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er svo sannarlega af gamla skólanum. Án þess þo að nákvæm skilgreining á gamla skólanum hafi nokkurn tíma verið gefin út.
Þessi 65 ára stjóri Arsenal er þó duglegur að vera í takt við tímann.
Gott dæmi um það er að hann tekur að þátt í „selfie"-æðinu sem tröllriðið hefur öllum samfélagsmiðlum.
Wenger tók sjálfu af sér í bíl sínum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Wenger og lærisveinar hans í bikarmeisturum Arsenal mæta Chelsea í leiknum árlega um Samfélagsskjöldinn sem fram fer á sunnudag.
Athugasemdir